Á fyrstu áratugum aldarinnar var skólinn á Árskógssandi, í húsi sem norskir síldveiðimenn höfðu reist þar og gekk undir nafninu "Norska húsið". Þar var kennt í stórum sal sem jafnvel þótti of stór því erfitt var að kynda hann upp.
Gamla skólahúsið, Árskógur, var byggt á árunum 1937 - 1942 og þjónaði bæði sem skóli og félagsheimili sveitarinnar upp frá því. Fyrst var kennt þar 26. október 1938.
Húsið sem notað er sem skólahús í dag var byggt á árunum 1966 - 1967 og var í upphafi heimavist og kennaraíbúð á efri hæð en tvær kennslustofur niðri.
Árið 1991 var húsinu breytt í núverandi horf. Sumarið 1998 reis 220 fermetra viðbygging við skólann og var hún tekin í notkun í febrúar 1999.
Í apríl 2012 hófust framkvæmdir við eldri hluta (syðri hlutinn) grunnskólans þar sem byggt var 50 fermetra anddyri fyrir leikskólabörn, sett upp lyfta og inngangur fyrir starfsfólk. Innviðir gamla hlutans voru endurnýjaðir með þarfir nýs samþætts leik- og grunnskóla í huga. Vinnuaðstaða og kaffistofa starfsmanna færð niður og svæði barna á efri hæð. Framkvæmdum lauk haustið 2012 er nýr skóli hóf göngu sína.
1971 var byggður skólastjórabústaður norðan skólans. Hann hýsti leikskóla sveitarinnar þar til hann og grunnskólinn sameinuðust í ágúst 2012.

![]() |
|
Félagsheimilið eftir breytingarnar 1992 - 1994.
|
Árið 1976 var gerð sundlaug vestan félagsheimilisins og útbúnir búningsklefar í kjallaranum.
Árin 1992 - 1994 voru gerðar miklar endurbætur og breytingar á félagsheimilinu og það fært til núverandi horfs. Byggt var anddyri og salurinn stækkaður ofl.
Leik- og grunnskóli
Árskógi
621 Dalvíkurbyggð
Símanúmer:
460 4970
Netfang: