Hvað er Uppbyggingarstefnan / Restitutioin?

Uppbyggingarstefnan (Restitution) er hugmyndakerfi sem starfsfólk skóla Dalvíkurbyggðar er að innleiða og ætlar að nota í samskipta- og agamálum. Stefnan er í daglegu tali nefnd Uppbygging. Lögð er áhersla á kennslu sjálfsaga, sjálfsstjórn og uppbyggileg samskipti. Uppbygging miðar að því að finna leiðir til lausna á ágreiningsmálum, skoða hvernig við viljum vera, hver hlutverk okkar eru og hvaða þarfir liggja að baki hegðunar okkar. Ef vel tekst til skapast aðstæður fyrir einstaklinginn til að leiðrétta og bæta fyrir mistök sín, gera betur og snúa síðan aftur til hópsins með aukið sjálfstraust.

Uppbyggingarstefnan leggur áherslu á jákvæð samskipti fremur en reglur, á ábyrgð fremur en blinda hlýðni og á virðingu fremur en stjörnugjöf. Treyst er á hæfileikann til sjálfstjórnar og að hver og einn geti hugsað áður en hann framkvæmir og brugðist rétt við aðstæðum. 


Uppbyggingarstefnan hvetur hvern og einn til að taka ábyrgð á eigin orðum og gerðum. Aðferðin nýtist við bekkjarstjórnun þar sem allir fá að vaxa og njóta sín. Þetta er aðferð í samskiptum og aðferð við að ná jafnvægi og innri styrk eftir að hafa beitt samferðamenn sína rangindum eða lent upp á kant við þá. Leitast er við að ná samstöðu um lífsgildi til að hafa að leiðarljósi og fylgja þeim síðan eftir með fáum skýrum reglum. Spurt er bæði hvernig við viljum vera og hvað við þurfum að gera til að ná eigin markmiðum í sátt og samlyndi við samferðamenn.

Nemendur læra:

· Að setja sér markmið, gera uppbyggingaráætlanir, stunda sjálfsskoðun

· Að rækta og efla sinn innri áhuga

· Að bera ábyrgð á eigin námi

· Að læra leiðir til að hafa stjórn á eigin hegðun

· Aðferðir við lausn ágreiningsefna

· Að sinna þörfum sínum af ábyrgð gagnvart sjálfum sér og öðrum (minni freisting að taka vonbrigði sín út á öðrum eða leggja aðra í einelti)

· Að mynda tengsl við aðra

· Að bera ábyrgð á eigin mistökum, leiðrétta þau og bæta fyrir þau

· Að verða þeir sjálfir - þær manneskjur sem þeir vilja vera.

· Að gera bekkjarsáttmála