Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Spurning mánaðarins

  • Fjölmenningasetur
  • island.is
  • Facebook
  • Pistlar úr Dalvíkurbyggð

Ferðaþjónusta

Í Dalvíkurbyggð geturðu fundið allt það besta sem Eyjafjörður býður uppá. Há fjöllin faðma að sér íbúa Svarfaðardals og Skíðadals á meðan víðátta sjávarins blasir við þeim sem búa á Árskógssandi. Náttúrufegurðin er ómótstæðileg og freistar þeirra sem einu sinni hafa komið til að koma aftur. Það er fátt fegurra heldur en miðnætursólin sem speglast í sjónum um hásumarið eða þegar litadýrð haustsins baðar fjöllin í september.

Kraftmikil náttúran endurspeglast í fólkinu sem hér býr. Hérna er pláss fyrir alla og allir ættu að geta fundið félagslíf og afþreyingu við sitt hæfi.

Nú er sumarið að skella á okkur og kominn ferðahugur í landann. Hér í Dalvikurbyggð verður ýmislegt um að vera í sumar.

Auk hinnar hefðbundnu afþreyingar s.s. sund, byggðasafn, hestaferðir, gönguferðir, golf, laser tag og litabolti, dýragarð og hvalaskoðun og fl. þá verða ýmsir viðburðir í gangi í allt sumar og ættu allir að geta fundið afþreyingu og skemmtun við sitt hæfi.

Við hér í Dalvíkurbyggð erum rík af stórkostlegri náttúru enda liggur sveitarfélagið á Tröllaskaganum. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér frekar þær gönguleiðir og gönguferðir sem eru í boði er bent á að skoða síðuna www.dalvik.is/gonguvika  og www.bergmenn.com . Fyrir þá sem kjósa styttir gönguferðir er tilvalið að fara á Sandinn eins og heimamenn kalla hann en það er sandfjara sem liggur niður hjá Dalvík. Einnig eru í sveitarfélagið fjölmargir litlir skógreitir sem óhætt er að kíkja inní og fá sér nesti. Friðland Svarfdæla er náttúruperla í Svarfaðardal en svæðið er friðlendi ýmissa fuglategunda. Hjá Náttúrusetrinu að Húsabakka er að finna ýmsar upplýsingar um Friðlandið auk þess sem þar er boðið upp á fuglaskoðunarferðir. Einnig er hægt að skoða náttúruna af sjó en boðið er upp á fuglaskoðun og hvalaskoðun frá Dalvík og
hvalaskoðun frá Hauganesi auk þess sem hægt er að fara á sjóstöng á báðum stöðum.

Fjölbreytt gisting er í boði í sumar , tjaldstæði, gistihús, sumarhús, hótel og svo framvegis og ættu allir að geta fundið gististaði við sitt hæfi.

Á veitingastaðnum Við höfnina á Dalvík er boði upp á ýmsa rétti og það sama á við um Gregor´s PubKaffihúsið í Bergi menningarhúsi er opið alla daga í sumar og hægt að fá sér kaffidrykki og létta rétti þar. Ýmsir aðrir kostir eru einnig í boði hvað varðar veitingar.

Samgöngur til og frá svæðinu eru auðveldar og fyrir þá sem ekki hafa einkabíl er auðveldlega hægt að komast með Hópferðabílum Akureyrar frá Akureyri auk þess sem hægt er að leigja sér bílaleigubíla þar.

Frá Dalvíkurbyggð fara einnig ferjur til Grímseyjar og Hríseyjar.


  • Webcam
  • Kortakerfi
  • Sorphirða
  • Fundargátt
  • Íbúðir til sölu
  • Mín Dalvíkurbyggð
  • Hús vikunnar
  • Sumarstörf

Viðburðadagatal

« maí 2013 »
m þ m f f l s
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31