Útivist og afþreying
Í Dalvíkurbyggð er ýmislegt hægt að gera til skemmtunar og afreyingar svo sem að fara á skíði og í sund og golf. Hægt er að fara í hestaferðir, hvalaskoðun,veiði, og berjamó og einnig er hægt að fara í gönguferðir, bæði stuttar og langar.
Skíðaparadís í Böggvisstaðafjalli
Í Böggvisstaðafjalli er eitt besta skíðasvæði á landinu. Dalvíkingar státa af mörgum frábærum skíðamönnum sem hampað hafa Íslandsmeistaratitlum og keppt fyrir Íslands hönd á alþjóðlegum skíðamótum. En það eru fleiri en afreksmenn á skíðum sem gera sér glaðan dag á skíðasvæði Dalvíkinga. Hér má finna brekkur við allra hæfi. Tvær skíðalyftur (1200 metra langar) teygja sig nánast neðan úr þéttbýlinu upp í 320 m. hæð þar sem hægt er að velja um samfelldar brekkur hvort heldur er fyrir ofurhuga á snjóbrettum eða skíðamenn sem fara vilja hægar í sakirnar og njóta stórbrotins útsýnis yfir djúpbláan Eyjafjörðinn. Svæðið hefur fjölbreytta skíðamöguleika hvort sem þú stundar alpagreinar, bretti, telemark eða gönguskíði. Í skíðaskálanum Brekkuseli er gistiaðstaða fyrir 45 manns.
Sundlaugin á Dalvík
Sundlaugin á Dalvík er glæsilegt mannvirki og sannkallaður unaðsreitur fyrir háa sem lága. Þar er auk 25 m langrar keppnislaugar að finna úrvals barnalaug þar sem börnin geta leikið sér á meðan foreldrarnir dorma áhyggjulausir í heitum pottum umhverfis eða sóla sig á bakkanum þegar viðrar til þess. Ferðafólk í Dalvíkurbyggð endar gjarnan í sundlauginni eftir góðan dag á skíðasvæðinu eða gönguferð um fjalllendið. Þá er vatnsrennibrautin sívinsæl hjá þeim sem kjósa meira fjör. Sundlaugarbyggingin sjálf sem hönnuð er af Fanneyju Hauksdóttur arkitekt þykir sérlega glæsilegt mannvirki og falla vel að umhverfinu. Þar innan dyra er vel búin líkamsræktarstöð en í grennd við sundlaugina er íþróttasvæði Dalvíkur með knattspyrnuvöllum, hlaupabrautum og öðru sem prýða má gott íþróttasvæði. Þar er líka tjaldstæði Dalvíkur með ágætri hreinlætisaðstöðu og aðbúnaði fyrir ferðafólk.
Golfvöllur
Arnarholtsvöllur heitir 9 holu golfvöllur í 7 km fjarlægð frá Dalvík. Hann er staðsettur á svokölluðu Arnarholti í Svarfaðardal en þar herma sagnir að landnámsmenn dalsins séu grafnir. Þar hafa verið grafin upp kuml úr heiðnum sið sem styðja þá sögn. Nú er á holtinu minnismerki um frumbyggja dalsins. Golfvöllurinn er tvímælalaust ein af útivistarperlum Dalvíkurbyggðar í stórbrotnu umhverfi og nýtur mikilla vinsælda bæði heimamanna og gesta. Golfklúbburinn Hamar sér um rekstur og viðhald vallarins. Einnig er á Dalvík lítill æfingavöllur með þremur holum. Völlurinn er milli kirkjunnar og heilsugæslunnar og er öllum opinn.
Hestaferðir
Hestamennska á miklu fylgi að fagna í Dalvíkurbyggð. Í Hringsholti er stærsta hesthús á Íslandi. Þar er hægt að fá leigða hesta og meðreiðarsveina í lengri eða skemmri hestaferðir eftir hentugleikum. Í þessu langhýsi sem áður hýsti 4000 refi hafa hestamenn á Dalvík innréttað hesthús og hlöður. Í norðurenda hússins er stórt reiðgerði og sýningarhringur, en norðan við hesthúsið er skeiðvöllur, keppnis- og sýningaraðstaða Hestamannafélagsins Hrings.
Hestaleigan Tvistur við Dalvík bíður upp á hestaferðir með leiðsögumanni í faðmi fagurra fjalla frá Hringsholti.
Hestar við allra hæfi. Reiðkennsla einnig í boði innandyra í reiðhöll.
Verð:
Reiðtúr í 1 klst. 4.500 kr. á mann.
Reiðtúr í 90 mínútur 6.000 kr. á mann.
Reiðtúr í 2 klst. 7.000 kr. á mann.
Reiðtúr í 3 klst. 9.000 kr. á mann.
Gerum tilboð fyrir hópa.
Upplýsingar og pantanir í símum 466-1679, 6169629 og 861-9631 eða ebu@ismennt.is
Hvalaskoðun og sjóstangaveiði.
Gerðir er út tveir hvalaskoðunarbátar í Dalvíkurbyggð, Níels Jónsson á Hauganesi og báturinn Draumur frá Arctic Sea Tours á Dalvík, og fara þeir í reglulegar hvalaskoðunarferðir yfir sumartímann. Sjaldnast þarf að fara langt út á Eyjafjörðinn til að sjá hvali af ýmsum tegundum en helst eru það hnúfubakar, höfrungar, hnísur, hrefnur og háhyrningar sem gleðja augað. Gjarnan er rennt fyrir fisk í þessum ferðum. Þá njóta miðnætursólarferðir á vorin og fyrri hluta sumars alltaf mikilla vinsælda ferðafólks. Dalvíkurbyggð er paradís sjóstangveiðimannsins. Eru hvalaskoðunarbátar sem og ýmsir aðrir bátar heimamanna nýttir í því skyni. Í Eyjafirðinum eru rómuð þorsk-og ýsumið enda eru hér oft haldin sjóstangaveiðimót.
Siglir kl. 9:30 til 12:30 frá Hauganesi alla daga í júní, júlí og ágúst( Ath. á öðrum tímum er hægt að leigja bátinn í ferðir fyrir smærri sem stærri hópa. )
Siglt er á Níelsi Jónssyni EA-106, sem er nánast óbreyttur fiskibátur, 30 tonn að stærð, smíðaður á Akureyri úr eik árið 1973. Bátnum hefur verið mjög vel við haldið. Hann er rúmgóður og þægilegur og er stjórnað af atvinnu fiskimönnum sem hafa siglt með ferðamenn síðan 1989 á sumrin.
Í hefðbundinni ferð er farið og komið frá litlu fiskimannaþorpi, Hauganesi (um 30 km frá Akureyri). Um borð er boðið upp á rjúkandi sjóarakaffi og heimagert bakkelsi, einnig eru sjóveiðistangir um borð þannig að þeir sem hafa áhuga geta rennt fyrir fisk.
Arctic Sea Tours á Dalvík býður uppá daglegar ferðir í hvalaskoðun og sjóstöng yfir sumartímann. Náttúrufegurð á Eyjafirði er einstök og í ferðunum er gjarnan siglt í kring um Hrísey, sannkallaða perlu Eyjafjarðar. Helstu hvalategundir sem sjást í Eyjafirði eru hnúfubakar, hnísur, hrefnur, höfrungar og steypireyðar, stærsta spendýr jarðar.
Fastar ferðir eru daglega. Morgunferð kl. 9:00 15. maí - 30.september, miðdagsferð kl. 13:30 frá 1. júni - 31.ágúst og kvöldferð kl. 19:00 frá 15. júní - 15. ágúst. Miðnæturferð kl. 23:99 frá 1. júlí - 15.júlí. Hver ferð 3 - 3 1/2 klst.
Bókanir í síma: 771-7600
www.ArcticSeaTours.is
Klifurveggurinn í Víkurröst
Opnunartímar klifurveggs í Víkurröst eru sem hér segir:
Mánudagur 14:00 – 15:00 (5. - 7. bekkur)
19:30 – 22:00 (8. bekkur og eldri)
Þriðjudagur 20:00 – 23:00 (16 ára og eldri )
Miðvikudagur 14:00 – 15:00 (5. - 7. bekkur)
19:30 – 22:00 (8. bekkur og eldri)
Fimmtudagur 20:00 – 22:00 (8. bekkur og eldri)
Föstudagur Lokað
Krakkar yngri en 13 ára verða að vera í fylgd fullorðinna
Gjald
Stakt skipti 500 kr
Vetrarkort 5.000 kr
Frítt fyrir 17 ára og yngri.
Gjald á hópa:
1 – 10 klifrarar 6.000 kr
Fleiri en 10, 500 kr á klifrara
Leiga á skóm 500 kr
Svarfaðardalsá er rómuð silungsveiðiá og ekki spillir að hún er einstaklega fögur þar sem hún liðast lygn um breiðan dalinn og með stríðum strengjum þar sem þverár renna í hana. Henni er skipt upp í fimm veiðisvæði og eru að jafnaði leyfðar tvær stangir á hverju svæði. Veiðifélag landeigenda í dalnum sér um sölu á veiðileyfum.
Í berjamó
Í Dalvíkurbyggð eru einnig einhver bestu berjalönd landsins. Á haustin verður Böggvisstaðafjall fyrir ofan Dalvík rautt af berjalyngi eins og raunar fleiri fjöll á þessum slóðum. Hvarvetna um byggðina má þá sjá fólk með berjafötur sitjandi á þúfum eða liggjandi í lautum að tína ber í heimspekilegri ró. Einkum eru það aðalberin bláu og svörtu sem laða að berjatínslufólk en einnig bláber og jafnvel krækiberin sem heimamenn flokka þó sumir til annars flokks fæðu af einskærum hroka þeirra sem hafa heldur mikið af landsins gæðum og kunna ekki að meta þau.
Gönguferðir
Fjalllendi Tröllaskagans er að margra dómi ein mikilfenglegasta útivistarparadís landsins. Svarfaðardalur liggur mitt í þessum fjallaklasa og þaðan liggja fjallvegir til allra átta; yfir í Þorvaldsdal og Hörgárdal, vestur til Skagafjarðar út í Fljót og yfir í Ólafsfjörð. Hér má finna gönguleiðir við allra hæfi allan ársins hring. Fyrir fjallgöngumenn eru fjallatindar af öllum stærðum og gerðum. Rimar, Stóllinn, Hnjótafjall og Dýjafjallshnjúkur eru tindar sem hver fjallgöngumaður getur verið fullsæmdur af. Fyrir þá sem frekar kjósa fjallvegi og fjallaskörð er af nógu af taka. Um Heljardalsheiði lá um aldir þjóðleiðin milli Eyjafjarðar og Skagafjarðar. Upp úr botni Skíðadals liggur leiðin upp á Tungnahryggsjökul. Þar eru krossgötur til Skagafjarðar og ofan í Hörgárdal. Þar stendur skáli Ferðafélags Svarfdæla göngulúnum ferðamönnum til afnota. Þorvaldsdalur á Árskógsströnd er fallegur dalur og vinsælt að ganga hann enda á milli og fyrir þá sem frekar kjósa styttri göngutúra má benda á stikaðar gönguleiðir um Friðland Svarfdæla eða léttari fjallgöngur upp að hinum dýrðlegu fjallavötnum Skeiðsvatni og Nykurtjörn.
Á sumrin eru haldnar sérstakar gönguvikur fyrir heimamenn og gesti. Nánari upplýsingar um þær eru á www.dalvik.is/gonguvika
Ferðaþjónustan að Klængshóli í Skíðadalbýður upp yndisferðir og lengri og skemmri gönguferði með leiðsögn, m.a. ferð yfir Heljardalsheiði, eyðibýlagöngu ásamt fleiri skemmtilegum gönguferðum, uppl. skidadalur@skidadalur.is
Bergmenn - Fagmenn í Fjallaleiðsögn eru eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í fjallaleiðsögn eingöngu. Bergmenn eru einnig eina fyrirtækið á Íslandi sem bíður uppá þjónustu alþjóðlega faglærðra fjallaleiðsögumanna. Bergmenn bjóða uppá fjölbeyttar fjallaferðir á Íslandi, Grænlandi og Ölpunum ásamt því að starfa sem leiðsögumenn um allan heim. Á Íslandi sérhæfa Bergmenn sig í fjallaskíðaferðum, þyrlu skíðun, fjallgöngum og klifri hverskonar. Þjónusta Bergmanna er sérsniðin að þörfum hvers viðskiptavinar sem þýðir að þú þarft ekki að bíða eftir að draumaferðin þín sé á dagskrá heldur hefur þú samband og við gerum hana að veruleika þegar þér hentar.
LaserTag
Fyrirtækið Artex ehf starfrækir LaserTag.
Lasertag er hægt að spila hvar sem er en undanfarið höfum við fengið leyfi hjá Dalvíkurbyggð til að spila í Brúarhvammsreit við Þorvaldsdalsána. Hægt er að taka á móti allt að 35 manns í einu í leiki sem settir eru upp samkvæmt óskum hverju sinni. Drægni lasertagbyssana er talsverð, eða um 150 metrar. Þessi búnaður hentar því bæði til leiks innan- og utandyra. Spilarar setja á sig ennisband sem tengt er byssunni og reyna síðan að hitta andstæðinginn. Þrátt fyrir nafnið þá er ekki um lasergeisla að ræða. Laser tag er búnaður sem sendir infrarautt ljós úr einu tæki í annað, sama kerfi og notað er í fjarstýringu á sjónvarp. Þetta er því algjörlega hættulaust og enginn sársauki því fylgjandi að vera hittur. Ekkert aldurstakmark er í lasertag.
Ævintýraferðir
Sportferðir er starfandi Ferðaskrifstofa staðsett í Dalvíkurbyggð með hópferða- og ferðaskrifstofuleyfi.
Sportferðir sérhæfa sig í skipulagningu hvataferða og hópeflis fyrir fyrirtæki og einnig árshátíða- og skemmtiferða hverskonar fyrir einstaklinga, félög og fyrirtæki. Afþreying sem er í boði hjá okkur er td. hesta- og gönguferðir, sjóferðir, sjóstangaveiði, köfun, fjórhjóla- og vélsleðaferðir.
Sportferðir eru einnig með mikla möguleika varðandi hverskonar veislur innan- sem og utandira.
Önnur sérgrein Sportferða er skipulagning og framkvæmd viðburða ss. snjókrossmótaraðar og alþjóðlegs snjókrossmóts.
Einnig koma Sportferðir að viðburðum eins og golfmótum, hestamannamótum og strandveiðimóti ofl. svo eitthvað sé nemt.
Sportferðir bjóða einnig uppá gistingu að Ytri-Vík á Árskógsströnd í frístundahúsum fyrir einstaklinga og hópa.
Allar upplýsingr um Frístundahúsin og gistingu eru í síma 899 8000 eða sporttours@sporttours.is
og upplýsingar um ferðir og afþreyingu gefur Marinó í síma 894 2967 eða marino@sporttours.is
"Söngvökur í Svarfaðardal"
"Jólavaka í Tjarnarkirkju" er orðin fastur liður í kringum jól í Svarfaðardal. Kristjana Arngrímsdóttir söngkona hefur staðið fyrir þessum söngvökum ásamt Kristjáni E. Hjartarsyni . Boðið er heim í bæ að lokinni dagskrá í kaffi og smákökur.
Nú er hægt að panta söngvökur á öllum tíma árs fyrir litla og stærri hópa allt að 60 manns. Í fallegu sveitakirkjunni á Tjörn er boðið upp á fjölbreytta söngdagskrá.
Hægt er að eignast áritaðann hljómdisk Kristjönu á staðnum.
Hafið samband við Kristjönu í síma 466 1855 eða 862 6155
Þjónustulisti
Sundlaug Dalvíkur, Tel. 466 3233
www.dalvik.is/sundlaug , sundlaug@dalvik.is
Byggðasafnið Hvoll, Tel. 466 1497
www.dalvik.is/byggdasafn hvoll@dalvik.is
Hestaþjónustan Tvistur, Hringsholt, Tel. 466 1679 / 861 9631
ebu@ismennt.is
Hvalskoðun og sjóstangaveiði Hauganesi, Tel. 867 0000/ 852 0006
www.niels.is, niels@niels.is
Hvalaskoðun, sjóstöng og fuglaskoðun frá Dalvík, Arctic seatours. Tel. 771 7600
www.arcticseatours.is book@arcticseatours.is
Golf, Arnarholtsvöllur Svarfaðardal, Tel. 660 9112 og 466 1204
www.golf.is/pages/klubbasidur/golfklubburinnhamar/ siggisjo@simnet.is
Skíðasvæðið Böggvisstaðafjalli, Tel. 466 1010
www.skidalvik.is
Bókasafn Dalvíkurbyggðar, Tel. 460 4930
www.dalvik.is/bokasafn dalbok@dalvik.is
Fiskidagurinn Mikli, Tel. 460 5802 and 897 9748
www.fiskidagur.muna.is, fiskidagurinn@julli.is ,
Klængshóll í Skíðadal, yndisferðir, skipulagaðar ferðir og leiðsögn, Tel. 466 1519 and 894 7788
www.skidadalur.is, skidadalur@skidadalur.is
Bergmenn - fagmenn í fjallaleiðsögn, Tel. 698 9870
www.bergmenn.com, info@bergmenn.com
LaserTag og Litbolti, Tel. 824 3990 og 466 1828
www.hittu.net artex@hittu.net haukur@hittu.net
Bruggsmiðjan á Árskógssandi, Tel. 466 2505
www.bruggsmidjan.is/ bruggsmidjan@bruggsmidjan.is
Sportferðir, jeppaferðir, köfun, hestaferðir, sjóstangveiði, óvissuferðir og fl. Tel. 894 2967 og 899 8000
www.sporttours.is, sporttours@sporttours.is
Söngvökur, Tel. 466 1855 eða 862 6155
Kristjana Arngrímsdóttir













