
Aðsetur: Ráðhús, 620 Dalvík
Sími: 466-1893( Höfn) og 466 1373 bakvakt allan sólarhringinn
Sími í Ráðhúsi 460–4900
Bréfasimi: 460-4901
Hafnastjóri: Bæjarstjóri Svanfríður Inga Jónasdóttir sij@dalvikurbyggd.is
Yfirhafnavörður: Gunnþór Sveinbjörnsson
Gsm: 846 1679, gunnthor@dalvikurbyggd.is
Hafnavörður: Óli Þór Jóhannsson
Afgreiðslutími
Frá kl. 08:00 - 17:00 alla virka daga.
Hafnareglugerð_244_2008
Gjaldskrá
Fundargerðir
Um Hafnasjóð Dalvíkurbyggðar og hafnir í sveitarfélaginu
Hafnasjóður Dalvíkurbyggðar (HSD) varð til á árinu 2007, við slit á Hafnasamlagi Eyjafjarðar bs. (HSE) en hafnir í Dalvíkurbyggð höfðu verið hluti HSE frá stofnun þess árið 1993.
Stutt lýsing á höfninni á Dalvík
Siglingarleið að höfninni er greið. Snúningsþvermál innan hafnar er um 100 m. Flutningaskip, sem leggjast að Norðurgarði snúa utan hafnar. Í innsiglingu er 7 - 8 m dýpi. Snúningssvæði innan hafnar er með 6 - 7 m dýpi. Meiripartur af bryggjuplássi er með yfir 6 m dýpi. Í smábátahöfn er dýpi um 2 m. Höfnin er örugg í öllum veðrum og kantar í A - B flokki. Skjól er fyrir smábáta í smábátahöfninni.
Athafnasvæði við Norðurgarð er gott, gámavöllur um 6.000 m2. Góð aðstaða er fyrir flutningaskip við Norðurgarð. Hafnarmynnið er 40 m breitt og takmarkar það stærð skipa. Gámalyftari fyrir 40 ft. gáma er á vegum skipaafgreiðslunnar. 60 t. bílavog og vogarhús er við Norðurgarð. Höfnin á auk þess pallvog, Löndunarkranar eru efst við Norðurgarð.
Stutt lýsing á höfninni á Árskógsströnd
Siglingarleið að höfninni er greið. Sæflötur í skjóli af hafnargarið Árskógssandi er um 0,8 ha. Við enda hafnargarðs er um 6 m dýpi og botn hallar út á meira dýpi. Byggð var bryggja fyrir Hríseyjarferjuna árið 1987. Upptökubraut fyrir smábáta er inni í höfninni. Höfnin á pallavog og 2 löndunarkranar eru staðsettir í krikanum á Norðurbryggju.
Stutt lýsing á höfninni á Hauganesi
Siglingarleið að höfninni er greið. Á Hauganesi er opin bryggja. Það er um 6 m dýpi við enda hafnargarðsins og botn hallar út á meira dýpi. Dýpið við Hauganesbryggju er 3 - 4 m. Höfnin á pallavog og löndunarkrani er staðsettur á miðri bryggju.
Dalvíkurbyggð er eigandi hafnanna. Bæjarstjórn fer með yfirstjórn hafnamála, en framkvæmdastjórn er falin hafnastjórn og hafnastjóra. Bæjarstjóri gegnir jafnframt embætti hafnastjóra.
Hafnastjórn er kjörin af sveitarstjórn og er kjörtímabil fulltrúa hið sama og sveitarstjórnar. Hafnastjórn hefur umsjón með fjármálum, rekstri, viðhaldi og nýbyggingum hafnanna. Hafnastjórn hefur ákvörðunarvald um rekstur hafnanna, svo sem ráðstöfun á aðstöðu, þ.m.t. leiga á húsnæði í eigu hafnanna og landi þeirra. Hafnarstjórn veitir leyfi til starfsemi á hafnasvæðum og hefur vald til að banna eða takmarka afnot hafnasvæða fyrir starfsemi sem hún telur torvelda eðlilegri hafnastarfsemi. Yfirhafnavörður fer með daglega stjórn hafnanna í umboði hafnarstjórnar. Hann sér um að gætt sé reglu á öllum hafnasvæðum hvort sem er á sjó eða landi. Er öllum skylt að hlýða fyrirmælum hans, eða þeirra sem hann felur störf við eftirlit og aðgæslu.
Lögreglan í umdæmi sýslumannsins á Akureyri hefur á hendi almenna löggæslu á hafnasvæðunum. Banna má ónauðsynlegan akstur hverskonar ökutækja og ónauðsynlega umferð gangandi fólks um bryggjur, hafnarbakka, farmstöðvar og önnur afgreiðslusvæði á hafnasvæðum. Fólk sem fer um hafnasvæðin er þar ávalt á eigin áhættu og ábyrgð. Bannað er að skjóta af byssum eða öðrum skotvopnum við hafnirnar eða á henni án leyfis. Sömuleiðis er bannað að skjóta flugeldum á hafnarsvæðinu án leyfis.
Í höfnum Dalvíkurbyggðar má ekki sigla skipum hraðar en svarar 4 sjómílum á klst., en þó aldrei hraðar en aðstæður og góðs sjómennska leyfa.
Sand- og malarnám og önnur slík starfsemi er bönnuð á hafnasvæðunum án leyfis hafnastjóra. Fiskveiðar á hafnasvæðum mega ekki trufla eðlilega umferð og afgreiðslu. Bannað er að leggja veiðarfæri á merktar siglingaleiðir og er heimilt að fjarlægja slík veiðarfæri á kostnað eiganda.
Hafnastjóra skal þegar í stað tilkynnt um það sem bjargað er í höfninni en hann gefur lögreglunni skýrslu, telji hann þess þörf.
Engum úrgangi eða rusli má kasta í höfnina eða ytri höfn hennar. Bannaður er hvers konar hvalskurður í eða við höfnina nema með leyfi yfirhafnavarðar. Eigi má draga, reka eða flytja á annan hátt inn í hafnir hvali, skipsflök eða neitt það sem valdið getur óþrifnaði, umferðartruflun eða óþægindum, nema leyfi hafnarstjóra komi til. Öllum skipum, farartækjum svo og verksmiðjum og öðrum atvinnurekstri er stranglega bannað að dæla eða láta renna í höfnina olíu, lýsi, olíusora eða öðru sem valdið getur mengun.
Skip sem hyggjast taka fljótandi eldsneyti skulu áður hafa gert ráðstafanir til að eldsneyti renni ekki í sjóinn af þilfari ef óhapp verður við eldsneytistökuna. Afgreiðsluaðila er óheimilt að afgreiða olíu til skipa sem ekki hafa, að mati hafnastarfsmanna, gert forsvaranlegar ráðstafanir til varnar mengun. Um varnir gegn mengun sjávar og viðurlög við mengunarbrotum fer samkvæmt gildandi lögum á hverju tíma.
Þeir sem óska eftir afgreiðslu fyrir skip, láni á tækjum eða þjónustu á einn eða annan hátt hjá höfninni, skulu snúa sér beint til starfsmanna hafnanna með beiðni þar að lútandi. Hafnastjóra er heimilt að neita þeim aðilum um aðstoð eða þjónustu, sem eru í vanskilum með gjöld til hafnasjóðs og hafa ekki sinnt ítrekuðum áskorunum um greiðslu gjaldfallinna gjalda
Ráðhúsi
620 Dalvík
Sími: 466 1893 (höfn) og 466 1373 bakvakt allan sólarhringinn.
Sími Ráðhús 460 4900 (Ráðhús)
Fax: 460 4901
Hafnastjóri:
Svanfríður Inga Jónasdóttir bæjarstjóri
netfang: sij@dalvikurbyggd.is
Yfirhafnarv:
Gunnþór Sveinbjörnsson
GSM: 846 1679 gunnthor@dalvikurbyggd.is
Afgreiðslutími frá 08:00 - 17:00 alla virka daga.