Staðsetning og aðgengi

Berg menningarhús er staðsett á Dalvík, í hjarta bæjarins. Húsið tengist ráðhúsi Dalvíkur með undirgöngum en þannig verður flæði á milli starfsemi Bókasafns Dalvíkurbyggðar og Héraðsskjalasafns Svarfdæla.

Aðgengi að húsinu er gott og næg bílastæði fyrir framan húsið. Rampur upp að húsinu gerir aðgengi fyrir fatlaða gott ásamt því sem að engir þröskuldar eru í húsinu.

Dalvík er í um það bið 35 mínútna akstursfæri frá Akureyri en góðar samgöngur eru þangað og rútuferðir alllt árið um kring.