Starfsemin

Húsið er glæsileg umgjörð utan um hverskonar menningarstarfsemi, sérstaklega listsýningar, tónleika, ráðstefnur og menningartengda ferðaþjónustu.

Kjarnastarfsemi hússins er Bókasafn Dalvíkurbyggðar. Opnunartími bókasafnsins er frá kl. 10:00-17:00 alla virka daga. Á laugardögum er opið frá 14:00-17:00. 

Salurinn tekur 180 manns í sæti og er hugsaður sem fjölnota salur. Hann er sérstaklega hannaður til þess að bera vel hljóð og hentar því einkar vel fyrir tónlistarflutning. Einnig er hægt að setja upp listsýningar af ýmsu tagi.

Andyrið sjálft er opið með fallegu útsýni yfir höfnina og út Eyjafjörð. Þar er hægt að setjast niður, fá sér kaffi á Kaffihúsinu Rincón Canario, lesa blöðin og fara á netið. Það býður einnig upp á möguleika á uppsetningum á minni sýningum. uppákomum og móttökum.

Kaffihúsið er opið mánudaga-laugardaga frá klukkan 11:00-17:00.

.