Í salnum í Bergi stendur nú yfir önnur sýning af þremur í þriggja sýninga röð myndlistar eftir listamanninn Brimar.
Sýningar eru sem hér segir:
29.mars 2011 - Landslagsmyndir
17. júní 2011 - Undir erlendum áhrifum
1. október 2011 -
Jón Stefán Brimar Sigurjónsson fæddist á Dalvík 13. júní 1928 og ólst þar upp að mestu leyti. Foreldrar hans voru þau Sigurjón Baldvinsson frá Böggivsstöðum og seinni kona hans Oddný Baldvinsdóttir frá Brimnesi heiðurs- og hagleiksfólk. Sigurjón var sjómaður framan af ævi, en snéri sér síðar að smíðum einkum þó bátasmíði. Oddný var ljósmóðir og mikil hannyrðakona.
Brimar erfði hæfileika foreldra sinna. Hann var óvenju hagur maður að öllum verkum, sem hann gekk að. Á sínum yngri árum sótti hann sjó, bæði á síldarbátum og togurum og fóru þar saman dugnaður hans og sérstök ósérhlífni. Snemma kom listhneigð Brimars í ljós. - Blýantsteikningar og allskonar verk, báru þess merki hvað í drengnum bjó. -
Hin harða lífsbarátta bauð Jóni Stefáni Brimari ekki að ganga menntaveginn, þann veg sem átti hug hans allan. Hann var greindur og las mikið af allkonar bókmenntum og fylgdist afar vel með því er snerti sögu lands og þjóðar.
Brimar var mikill trúmaður og hafði ákveðnar skoðanir á þeim málum. En hann bar ekki skoðanir sínar á torg eða á opinberan vettvang. Hann var í eðli sínu hlédrægur maður, sem lét best að fara einförum. Hans tjáningarform var alla tíð bundið litum og pensli. Jafnhliða listinni stundaði Brimar húsa- og híbýlamálun og var mjög eftirsóttur á þeim vettvangi, bæði vegna dugnaðar og ekki síður velvildar við þá, sem hann vann fyrir. Einnig var hann liðtækur leiktjaldamálari.
Brimar hélt sjaldan sýningar á verkum sínum opinberlega. Skömmu fyrir jólin 1980 opnaði hann þó viðamikla sýningu í ráðhúsi Dalvíkur. Meðan á þeirri sýningu stóð lést hann, 23. desember aðeins 52 ára að aldri. Hann hafði oft orð á því að hann yrði ekki langlífur og nefndi þá gjarnan árin, sem hann ætti ólifað. Það stóðst eins og allt hjá honum Brimari. Þrátt fyrir mikla stærð og líkamsburði féll þrekmennið sem hendi væri veifað.
Áður en Jón Stefán Brimar féll frá, hafði hann ákveðið að gefa verk sín Dalvíkurbæ sem fyrsta vísi að listasafni Dalvíkinga. Það kom síðan í hlut systur hans Þórdísar Helgu að afhenda Dalvíkurbæ listaverkin.
Úrdráttur úr grein Júlíusar Kristjánssonar um Brimar Sigurjónsson
Netfang: berg@dalvikurbyggd.is
Berg menningarhús á Dalvík
var formlega opnað
5. ágúst 2009.