Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Spurning mánaðarins

  • Fjölmenningasetur
  • island.is
  • Facebook
  • Pistlar úr Dalvíkurbyggð

Tjaldsvæðin á Dalvík í tengslum við Fiskidagshelgina verða með svipuðum hætti og síðasta ár, nema hvað að aðstaða í grennd við sundlaugina hefur minnkað vegna byggingar íþróttahúss. Bent er á að tjaldsvæði ofan Dalvíkurkirkju verða nú sérstaklega ætluð þeim sem vilja og þurfa að hafa rólegt í kring um sig, etv. fjölskyldufólki og (h)eldra fólki. Aukin gæsla verður á tjaldsvæðum í ár sem kemur vonandi til með að tryggja að allir sofi vel í öruggu umhverfi! Tjaldsvæðin eru vel staðsett og í göngufæri við hátíðarsvæði og alla þjónustu. Salerni verða á öllum merktum tjaldsvæðum.

1. Tjaldsvæði Dalvíkur (aðaltjaldsvæði): Ekið er inn á það til vinstri við móts við Olís. Hægt er að leggja húsbílum, vögnum og tjalda á svæðum við tónlistarskólann og milli hans og íþróttahúss, í kring um sparkvöllinn. Á aðalsvæði er góð aðstaða fyrir gesti t.d. heitt og kalt vatn, snyrtingar (aukasnyrtingar við innkeyrslu), sturtur, losunarbúnaður fyrir húsbíla og aðgangur að rafmagni. Vert er að minna á að okkur er ómögulegt að tryggja öllum gestum aðgang að rafmagni. Gestir verða að sýna tillitssemi og nota rafmagnið á skynsaman hátt þ.e. ekki ofhlaða tengla og framlengingar og nota ekki tæki sem eyða miklu rafmagni t.d. rafmagnsofna.
Sá sem greiðir fyrir viðkomandi tengil ber ábyrgð á að fleiri noti hann ekki án þess að greiða fyrir og gæti þess að álagið verði ekki of mikið. Akstursleiðir verða málaðar um aðaltjaldsvæðið sem og nálæg stæði. Þetta er gert í þeim tilgangi að gæta fyllsta öryggis t.d. ef slökkvilið eða sjúkrabílar þurfa að komast að ákveðnum svæðum á sem stystum tíma. Aðalsvæði er skipt upp í merkt hólf, kynnið ykkur á hvaða svæði þið búið ef kalla þarf til aðstoð v. óhapps eða t.d. bruna. Einnig er minnt á að nauðsynlegt er að hafa í huga bil milli gistieininga, t.d. húsbíla eða tjaldvagna, með brunahættu í huga.

2. Tjaldsvæði sunnan og ofan við sundlaug: Hægt verður að komast þangað frá Böggvisbraut og frá bílastæðum neðan við íþróttahús.

3. Tjaldsvæði vestan (ofan) við Dalvíkurkirkju: Sérstaklega ætlað þeim sem vilja óskertan nætursvefn og rólegheit, fyrir fjölskyldufólk og eldra fólk.

4. Tjaldsvæði við Ásgarð: Við bæjarmörkin, áður en komið er að Olís. Ekið er inn á það svæði norðan við Ásgarð. Gott svæði fyrir stærri tæki.

Gæsla verður aukin á tjaldsvæðum í ár. Eftirlit verður á öllum tjaldsvæðunum sem á að tryggja næturró og að fólk fái þær upplýsingar sem það þarf. Símanúmer gæslu á aðalsvæði verður 466-3133.

Innheimt verður gjald fyrir allar einingar sem tjaldað verður á merktum tjaldsvæðum. Fyrir stærri einingar eins og fellihýsi, hjólhýsi, húsbíla og tjaldvagna er rukkað 3.000 kr gjald en fyrir tjöld skal greiða 2.000 kr. Gjaldið er rukkað frá miðvikudeginum en það gildir til mánudagsmorguns.

Á tjaldsvæðum á Dalvík gilda landslög sem segja að einstaklingum undir 18 ára aldri er ekki heimilt að tjalda nema í fylgd með foreldrum eða forráðamönnum.
Aðeins er heimilt að tjalda á merktum tjaldsvæðum.

• Bílastæði eru við grunnskólann, fyrir framan Víkurröst og sunnan knattspyrnuæfingasvæðis við innkeyrslu í bæinn. Athugið einnig önnur merkt bílastæði í öllum bænum sem sjá má á korti í Fiskidagsblaðinu. Sýnum útsjónarsemi og tillitssemi við lagningu ökutækjanna og nýtum plássin vel. Bannað er að aka um tjaldsvæði að nóttu til. Ætlast er til að þeir sem geyma bíla sína inni á tjaldsvæðum hreyfi þá ekki fyrr en við heimferð.

• Sundlaug Dalvíkur – Sturtur: Sundlaug Dalvíkur verður opin alla daga; virka daga frá 6:15 til 20:00, á laugardag frá 08:00 til 20:00, á sunnudag er opið frá 08:00 til 19:00. Aðgangseyrir er 450 kr fyrir alla 17 ára og eldri, frítt fyrir börn á grunnskólaaldri. Sturtur í umsjón félaga í UMFS verða opnar á neðri hæð sundlaugar milli kl. 09:00 og 12:00 og kl. 17:00 til 19:00 föstudag og laugardag. Aðgangur er kr. 300 fyrir 18 ára og eldri.

• Óskilamunir: Finnist óskilamunir hátíðardagana skal þeim vinsamlegast komið í Sundlaug Dalvíkur þar sem þeir verða geymdir þar til eigendur gefa sig fram. Sími sundlaugar er 466-3233.

VELKOMIN Á TJALDSVÆÐI DALVÍKUR

Tjaldsvæði Dalvíkur

Tjaldsvæði Dalvíkur er staðsett neðan Sundlaugar Dalvíkur og við hlið Dalvíkurskóla. Þar er notaleg aðstaða fyrir gesti t.d. heitt og kalt vatn, snyrtingar, sturtur, losunarbúnarður fyrir húsbíla og aðgangur að rafmagni. Stutt er á leiksvæði við skólann og sundlaugin hefur mikið aðdráttarafl fyrir gesti.

Tjaldsvæðið er í umsjón starfsfólks Sundlaugar Dalvíkur, vinsamlegast látið vita ef einhverju er ábótavant eða betur mætti fara. Ekki er sérstök vakt á tjaldsvæðinu en starfsfólk sundlaugar sér um  svæðið á opnunartíma sundlaugarinnar sem er virka daga milli kl. 06:15 til kl. 20:00 og um helgar frá kl. 10:00 til kl. 19:00. Sími í sundlaug er 466-3233.

Gjaldskrá tjaldsvæðisins er eftirfarandi: 

Gjald er tekið fyrir hverja einingu, þ.e. tjald, hjólhýsi eða annað gistirými.

Ekki er tekið sérstakt gjald fyrir einstaklinga.

Einungis er greitt fullt gjald fyrstu tvær nætur.
Þriðju nótt er hálft gjald og síðan er gistingin ókeypis.

Sumarið 2007 er fullt gjald fyrir nóttina kr. 1.000 á einingu og kr. 500 fyrir þriðju nótt.

Aðgangur að rafmagni kostar 200 kr á sólarhring. Hægt er að leigja millistykki í þriggja pinna innstungur, það kostar 200 krónur á sólarhring.

Gestir eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við starfsfólk sundlaugar og greiða gistingu og láta vita af notkun rafmagns og inna greiðslu af hendi fyrir það.

Sumarið 2007 verður ekki tekið gjald í tengslum við Fiskidaginn mikla,
þ.e. ekki er tekið gjald frá 7. ágúst til og með 13 ágúst.

Tjaldsvæðið er opið frá 1. júní til 31. ágúst ár hvert.

Velkomin á tjaldsvæðið okkar í sumar - við tökum vel á móti þér!

  • Webcam
  • Kortakerfi
  • Sorphirða
  • Fundargátt
  • Íbúðir til sölu
  • Mín Dalvíkurbyggð
  • Hús vikunnar

Viðburðadagatal

« júní 2013 »
m þ m f f l s
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30