Félagsmiðstöðin Týr

Víkurröst

620 Dalvík 

Sími: 460-4988

 

Netfang: tyr@dalvikurbyggd.is  

Heimasíða: http://www.dalvikurbyggd.is/tyr

Týr er félagsmiðstöð á vegum Dalvíkurbyggðar. Markhópurinn eru börn og unglingar í 5. - 10. bekk búsett í Dalvíkurbyggð.

Áhersla er lögð á fjölbreytt og uppbyggilegt tómstundastarf fyrir unglinga í 8. - 10. bekk. Mikil áhersla er lögð á unglingalýðræði og að virkja gesti félagsmiðstöðvarinnar í að fylgja hugarfóstri sínu frá hugmynd til framkvæmdar.

Boðið er upp á opið starf og fjölbreytta klúbba sem sniðnir eru eftir áhugasviði og þörfum þeirra einstaklinga sem sækja staðinn. Þá eru haldnar ýmsar uppákomur og verkefni í samstafi við börn, foreldra, skóla og aðra samstarfsaðila í bænum.

Að auki er mikil áhersla lögð á fræðslu um ýmis málefni tengdum lífsleikni og má þar nefna fræslu gegn fordómum, forvarnir gegn vímuefnum, stuðningur við jákvæða sjálfsmynd og margt fleira.

Einu sinni í viku er boðið uppá opið hús fyrir börn í 5. - 7. bekk að loknum skóladegi.

C.a. einu sinni í mánuði stöndum við fyrir starfi fyrir 1. - 4.bekk. Þessir viðburðir eru auglýstir sérstaklega.

Mikil áhersla er lögð á gott samstarf við foreldra/forráðamenn og alla þá aðila sem koma að uppeldismálum í Dalvíkurbyggð. Lögð er mikil áhersla á að félagsmiðstöðin sé sýnileg og opin þeim sem áhuga hafa á að kynna sér starfsemina.