Hafliði Ólafsson starfsmaður á gámasvæði leiðbeinir og aðstoðar fólk við flokkun á opnunartíma gámasvæðis.
Opnunartími gámasvæðisins er eftirfarandi:
Vinsamlegast virðið opnunartíma gámasvæðis.
Vakin er athygli á því að gámasvæðið er ekki leikvöllur barna og unglinga. Þar leynast hættulegar gildrur og ekki síður hættuleg efni. Foreldrar eru því beðnir um að brýna það fyrir börnum sínum.
Sorp til endurvinnslu og förgunar er flokkað á eftirfarandi hátt í Dalvíkurbyggð.
Þar er einn gámur fyrir timbur, annar fyrir málma og brotajárn, þriðji fyrir garðaúrgang og sá fjórði fyrir óflokkanlegt sorp eins og plast, sjónvörp, tölvur og fleira.
Þá er sérgámur fyrir dagblöð og tímarit og einnig sérgámur fyrir hjólbarða og sérstakur gámur fyrir kælitæki eingöngu.
Litlu gráu gámarnir eru fyrir óflokkað heimilisrusl.
Fatnaði er hægt að skila inn til Rauða krossins.
Björgunarsveitin er með móttöku á drykkjarvöruumbúðum og þar fyrir utan er einnig gámur fyrir fernur.
Spilliefnum er hægt að skila í þar til gerð merkt ker fyrir utan Áhaldahúsið við Sandskeið.
Áhaldahúsið tekur við afskráðum bifreiðum og starfsmenn þar gefa út skilavottorð.
En nú er greitt skilagjald 15.000 krónur fyrir bifreiðar skráðar eftir 1980.
Flokkum rétt og samviskusamlega
Garðyrkjustjóri
Netföng: hitaveita@dalvikurbyggd.is
Vaktsími veitna er 892 3892