Landbúnaðarráð (60)25.02.2010
26.02.2010Landbúnaðarráð
60. fundur
11. fundur landbúnaðarráðs 2006-2010
Fimmtudaginn 25. febrúar 2010 kl. 13:30 kom Landbúnaðarráð saman til fundar í Ráðhúsi Dalvíkur. Undirritaðir sátu fundinn.
Þetta gerðist:
1. Breytingar á samþykktum um fjallskil.
Á fundinn var mættur Ólafur Vagnsson, formaður nefndar um endurskoðun fjallskilasamþykktar sveitarfélaga í Eyjafirði. Ólafur gerði grein fyrir vinnu nefndarinnar og áætluð verklok verða n.k. haust og fram kom í máli hans að tekið verður á móti hugmyndum að breytingum á samþykktum um fjallskil fram á vor. Að sögn Ólafs verða fyrstu drög að nýjum samþykktum um fjallskil send til sveitastjórna til skoðunar og athugasemdar fljótlega.
Ólafur vék af fundi.
2. Trúnaðarmál.
Bókað í trúnaðarmálabók.
3. Tillaga um breytingar á samþykktum um búfjárhald í Dalvíkurbyggð.
Fyrir fundinum lá tillaga um breytingar á 6. gr. samþykktar um búfjárhald í Dalvíkurbyggð, eftir breytingu lítur 6. gr. út eins og fram kemur hér að neðan og er tillagan feitletruð:
6. gr.
Öllum umráðamönnum búfjár í sveitarfélaginu, á lögbýlum og utan þeirra, er skylt að hafa það í vörslu sem hér segir:
a) Hross frá stóðréttum að 15. júní, þó er landeigendum heimilt að nýta sér ógirt heimalönd fram að 1. desember, á sína ábyrgð.
b) Nautgripir allt árið.
c) Sauðfé og geitur, frá fyrstu göngum til 1. júní.
Zophonías leggur til að liður b) verði eftirfarandi „Nautgripir frá 15 október til 15 júní.“
7. gr.
Öllum umráðamönnum búfjár í sveitarfélaginu, á lögbýlum og utan þeirra, er heimilt að hafa það í ógirtum heimalöndum og afréttum sem hér segir:
a) Sauðfé má sleppa á Þorvaldsdal eigi fyrr en 15. júní og þá í samráði við fjallskilastjóra.
b) Sauðfé má sleppa á Sveinstaðaafrétt 1. júní og þá í samráði við fjallskilastjóra.
c) Í Sveinsstaðaafrétt má sleppa hrossum eigi fyrr en 15. júní og þá í samráði við fjallskilastjóra.
Óbreytt er samþykktin eftirfarandi:
6. gr.
Öllum umráðamönnum búfjár í sveitarfélaginu, á lögbýlum og utan þeirra, er skylt að hafa það í vörslu sem hér segir:
a) Hross og nautgripir, allt árið.
b) Sauðfé, frá fyrstu göngum til 15. júní.
Landbúnaðarráð frestar á 3. tl. til næsta fundar ráðsins.
4. Önnur mál.
Engin önnur mál
Fleira ekki bókað og fundi slitið kl. 16:45
Haraldur Jónsson Þorsteinn Björnsson
Snorri Snorrason Ingvar Kristinsson
Trausti Þórisson
Zophonías Jónmundsson Elín Rósa Ragnarsdóttir

Dalvíkurbyggð






