Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Spurning mánaðarins

  • Fjölmenningasetur
  • island.is
  • Facebook
  • Pistlar úr Dalvíkurbyggð

Hafnarstjórn(34); 09.07.2012

10.07.2012

Hafnarstjórn - 34. fundur
haldinn fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur, mánudaginn 9. júlí 2012
og hófst hann kl. 16:00


Fundinn sátu:
Kolbrún Reynisdóttir, Óskar Óskarsson, Pétur Sigurðsson, Þorsteinn Már Aðalsteinsson, Svanfríður Inga Jónasdóttir, Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson, Berglind Björk Stefánsdóttir.

Fundargerð ritaði:
Svanfríður Inga Jónasdóttir, bæjarstjóri

Dagskrá:

1. 201201028 - Framkvæmdir 2012
Fram hefur komið að við útboð á flotbryggju á Dalvík var ekki gert ráð fyrir rafmagnsstaurum og fingrum á bryggjuna. Ástæðan þess að fingurnir eru ekki með er sú að þeir eru ekki ríkisstyrktir, þ.e. eiga að greiðast að fullu af hafnasjóði. Samkvæmt þeim upplýsingum sem liggja fyrir kostar hver fingur um kr. 800 þús. og rafmagnsstaur um kr. 170 þúsund. Talið er mikilvægt að kaupa þrjá rafmagnsstaura og 10 fingur sem gerði þá mögulegt að 16 bátar gætu legið við bryggjuna.
Hafnastjórn samþykkir að fresta kaupum á fingrum til næsta árs, en að gengið verði frá rafmagni í ár. Hlutur hafnasjóðs gæti orðið allt að kr. 500 þús. og leggur stjórnin til að fjárfestingar 2012 hækki um þá upphæð og verði gengið á hagnað á móti.

2. 201205048 - Umhverfismál hafna
Á 33. fundi HSD samþykkti stjórnin að senda drög að Áætlun um móttöku og meðhöndlun úrgangs og farmleifa til umsagnar hjá Umhverfisstofnun. Svar barst frá stofnuninni, dags. 20. júní 2012 þar sem gerðar eru athugasemdir við drögin. Hafnastjóri gerði grein fyrir málinu.
Hafnastjórn samþykkir að fela hafnastjóra og yfirhafnarverði að ljúka við áætlunina og senda til Umhverfisstofnunar.

3. 201110086 - Gjaldskrá
a) Á 33. fundi HSD var samþykkt að frá 1. júlí yrðu innheimt gjöld af gámum á hafnasvæðum í samræmi við gjaldskrá, en það hefur ekki verið gert til þessa. Samþykktin var þó bundin því að sveitarfélagið tæki upp sambærilega gjaldtöku.
Umhverfisráð Dalvíkurbyggðar hefur samþykkt að taka upp sambærilega gjaldtöku af gámum í sveitarfélaginu og styðst þá við ákvæði um stöðuleyfi í byggingareglugerð nr. 112/2012 og ákvæði 51. gr. mannvirkjalaga nr. 126/2011.
Starfsmenn HSD og sveitarfélagsins hafa fundað um málið til að framkvæmdin verði samræmd og fyrir fundinum liggja drög að bréfi sem fyrirhugað er að senda til þeirra sem eru með gáma ýmist á hafnarsvæðinu eða utan þess.
b) Yfirhafnavörður ræddi um hækkun á uppsátursgjaldi vegna báta sem standa lengi á bryggjunni vegna viðgerða eða til geymslu. Í dag er gjaldið 1.575 pr. mánuð.


a) Þorsteinn, Pétur og Óskar lýsa sig vanhæfa við afgreiðslu bréfsins en Kolbrún og Berglind samþykkja.

b) Samþykkt er að uppsáturgjald á bryggju sé jafnhátt og ef bátur liggur við bryggju, kr. 4.200.

4. 1207004 - Fjögurra ára samgönguáætlun 2013-2016
Tekið fyrir bréf frá Siglingastofnun, dags. 29. júní 2012 varðandi fjögurra ára samgönguáætlun 2013 - 2016. Fram kemur að komið sé að því að hefja undirbúning næstu fjögurra ára og er gefinn kostur á að sækja um framlag til nýrra verkefna og/eða staðfesta eldri verkefni sem eru í samgönguáætlun 2013 - 2014 og sem kunna að vera ólokið frá árunum 2011 - 2012 svo fremi þau séu styrkhæf. Einnig er gefinn kostur á að sækja um framlag vegna sjóvarna. Umsókn um ríkisframlög skal senda til Siglingastofnunar fyrir 1. október 2012.

Í bréfinu er einnig minnt á að þann 1. janúar 2013 fellur úr gildi ákvæði til bráðab. II í hafnalögum sem fól í sér að ríkissjóði væri heimilt að styrkja framkvæmdir í höfnum samkvæmt eldri hafnalögum nr. 23/1994. Kostnaðarþátttaka ríkisins í nýrri hafnaáætlun verði því eins og kveðið er á um í 24. gr. hafnalaga nr. 61/2003. Samkvæmt þeim ákvæðum eru litlar líkur á að framkvæmdir á vegum HSD teldust styrkhæfar.

HSD hafði áður sent inn umsóknir um ríkisstyrk og viðskiptaáætlanir vegna færslu á grjótgarði og flotbryggju í Árskógshöfn og um hafskipabryggju á Dalvík. Enginn þessara framkvæmda eru á gildandi samgönguáætlun.
Hafnastjórn samþykkir að boða til fundar til að kanna áhuga fyrir frystigeymslu á hafnarsvæðinu á Dalvík sem lið í undirbúningi umsókna hafnasjóðs um ríkisstyrki í framkvæmdir.

5. 201207009 - Hafnasambandsþing 2012
Hafnasambandsþing 2012 verður haldið í Vestmannaeyjum 20.-21. september. Umfjöllunarefni verða m.a.: Samgönguáætlun, fjárhagur hafna og ný hafnalög.
Svanfríður Jónasdóttir, hafnastjóri, er varamaður í stjórn Hafnasambands Íslands og mun sækja fundinn. Jafnframt að Gunnþór Sveinbjörnsson yfirhafnarvörður sæki fundinn.

6. 201201037 - Önnur mál 2012
a) Yfirhafnavörður hefur hug á að selja það girðingarefni sem höfnin ekki þarf nauðsynlega að eiga.
b) Samkvæmt upplýsingum yfirhafnarvarðar eru tekjur HSD fyrir fyrri helming ársins kr. 34.833.000 sem er aðeins yfir áætlun en áætlun ársins er kr. 63.487.000


a) Stjórnin heimilar yfirhafnaverði að selja þær girðingar sem höfnin ekki þarf að eiga.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30


Til baka

  • Webcam
  • Kortakerfi
  • Fundargátt
  • Mín Dalvíkurbyggð
  • Hús vikunnar
  • Information

Viðburðadagatal

« júní 2013 »
m þ m f f l s
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30