Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Spurning mánaðarins

  • Fjölmenningasetur
  • island.is
  • Facebook
  • Pistlar úr Dalvíkurbyggð

Bæjarráð(632); 12.07.2012

12.07.2012

Bæjarráð Dalvíkurbyggðar - 632. fundur
haldinn fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur, fimmtudaginn 12. júlí 2012
og hófst hann kl. 08:15


Fundinn sátu:
Kristján Hjartarson, Marinó Þorsteinsson, Björn Snorrason, Jóhann Ólafsson, Heiða Hringsdóttir, Svanfríður Inga Jónasdóttir, Guðrún Pálína Jóhannsdóttir.

Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir, sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Dagskrá:

1. 201207010 - Frá Sýslumanninum á Akureyri; Beiðni um umsögn vegna umsóknar um breytingu á rekstrarleyfi; Gimli-Dalvik hostels.
Tekið fyrir rafbréf frá Sýslumanninum á Akureyri, dagsett þann 5. júlí 2012, þar sem óskað er umsagnar um umsókn um breytingu á rekstrarleyfi. Umsóknin er frá Kristínu A. Símonardóttur, kt. 190964-2729, en um er að ræða gististaðaflokk IV vegna Hafnarbrautar 4, Á vegamótum við Skíðabraut ( 3 smáhýsi og gamli bærinn) skíðaskálinn Brekkuseli undir nafninu Gimli-Dalvik hostel.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.

2. 201207017 - Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Nýsköpun í opinberum rekstri.
Tekið fyrir bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett þann 6. júlí 2012, þar sem fram kemur að stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykkti á fundi sínum 29. júní s.l. að sambandið gerist aðili að verkefni þar sem hvatt er til nýsköpunar og þróunarverkefna í starfsemi ríkisins. Með aðkomu sambandsins þá tekur verkefnið einnig til nýsköpunar í rekstri sveitarfélaga. Ákveðið hefur verið að halda nýsköpunarráðstefnu 30. október n.k. í Reykjavík. Er það von sambandsins að sveitarfélögin muni taka þessu framtaki vel. Vefsíða verkefnisins er www.nyskopunarvefur.is
Lagt fram til kynningar.

3. 1207002 - Frá Þjóðskrá Íslands; Fasteignamat 2013.
Tekið fyrir bréf frá Þjóðskrá Íslands, bréf dagsett þann 2. júlí 2012, þar sem kynntar eru niðurstöður endurmats 2013 og veittur er frestur til 1. ágúst n.k. til athugasemda.

Fasteignamatið 2013 endurspeglar markaðsverðmæti eins og það var í febrúar 2012. Hverjum fasteignaeigenda er birtur tilkynningarseðill um niðurstöður endurmats fasteigna hans á upplýsinga- og þjónustuveitunni www.island.is .

Hækkun heildarfasteignamats í Dalvíkurbyggð milli áranna 2012 og 2013 er 10,9% vegna fasteignar og 11,0% vegna lóðar/lands.

Af 75 sveitarfélögum í landinu þá eru 5 sveitarfélög með meiri hækkun á milli ára en Dalvíkurbyggð hvað varðar fasteignir og 8 sveitarfélög með sömu eða meiri hækkun hvað varðar lóðir/land.
Lagt fram til kynningar.

4. 1206063 - Álagning fasteignaskatts á hesthús 2012; ákvörðun um endurálagningu skv. a-lið 3 mgr. 3. gr laga um tekjustofna sveitarfélaga.
Þann 11. júní 2012 var samþykkt á Alþingi breyting á lögum um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 með síðari breytingum er varðar álagningu á hesthús.

Samkvæmt breytingunni skulu sveitarfélög frá og með 1. janúar 2013 leggja á hesthús samkvæmt a-flokki í stað þess að leggja á samkvæmt c-flokki.

Samkvæmt ákvæði til bráðabirgða er sveitarstjórn heimilt að lækka álagningu fasteignaskatts á árinu 2012 á hesthús þannig að álagningarhlutfall þeirra eigna sé það sama og annarra fasteigna skv. a-lið 3 mgr. 3. gr.

Samkvæmt samantekt sviðstjóra umhverfis - og tæknisviðs þá myndu tekjur sveitarfélagsins vegna fasteignaskatts lækka um rúmar kr. 900.000 ef lagt væri á hesthús í Dalvíkurbyggð fyrir árið 2012 skv. a-flokki í stað b-flokks.
Bæjarráð samþykkir að lagt verði á skv. a-flokki frá og með 1. júlí 2012. Lækkun á álagningu fasteignaskatts vegna hesthúsa í Dalvíkurbyggðar er því um kr. 450.000.

5. 201205069 - Íbúafundur 2. júlí s.l. um deiliskipulag að Upsum.
Á 629. fundi bæjarráðs þann 14. júní 2012 var samþykkt tillaga um að halda íbúafund þar sem reynt yrði að átta sig á því hvernig vilji íbúanna yrði best kallaður fram. Tillaga um íbúafund var staðfest í bæjarstjórn 19. júní s.l. og fór fundurinn fram mánudaginn 2. júlí s.l. í menningarhúsinu Bergi og hófst hann kl. 17:00.

Bæjarstjóri lagði fram á fundi bæjarráðs minnisblað um íbúafundinn.
a) Bæjarráð samþykkir að kosið verði um málið og stefnt verði að kosningu þann 20. október n.k.
b) Bæjarráð samþykkir að skoðað verði möguleikinn á rafrænni kosningu.

6. 201204042 - Fjárhagsáætlun 2013- (2016); drög að forsendum.
Með fundarboði bæjarráðs fylgdu drög að forsendum með fjárhagsáætlun 2013 en hluti af forsendum þarfnast umfjöllunar og sérstakra ákvörðunar í bæjarráði.

Jóhann Ólafsson vék af fundi undir þessum lið kl. 09.06 til annarra starfa.
Rætt á fundinum og afgreiðslu frestað.

7. 1206046 - Skipting fjárhagsheimildar 2012 á milli Grunnskóla Dalvíkurbyggðar og Árskógarskóla; leiðrétting.
Á 630. fundi bæjarráðs Dalvíkurbyggðar þann 21. júní 2012 samþykkti bæjarráð tillögu að breytingu á fjárhagsrömmum fyrir deildir 04-13, 04-21 og 04-24.

Gera þarf leiðréttingu þar sem fjárhagsrammi deildar 04-13 vegna janúar - júlí var settur á deild 04-24. Heildarupphæðin er sú hin sama.

 

 

Rammi  Samþykkt Leiðrétting:
 Deild:  Stofnun:  2012.  þann 21.6.2012:
04-13. Leikbær  22.879.000  0 13.114.000
04-21. Grunnskóli 351.174.000 331.035.211 331.035.000
04-24. Árskógarskóli nýr  0 44.631.818 31.521.000
374.053.000 375.667.029 375.670.000

                                                                                                        1.617.000

Bæjarráð samþykkir ofangreinda tillögu.

8. 201207015 - Kjarasamningsumboð til Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Með fundarboði bæjarráðs fylgdu drög að samkomulagi um kjarasamningsumboð til Sambands íslenskra sveitarfélaga. Gera þurfti nokkrar breytingar og samkvæmt ráðleggingum frá Sambandinu er um tillögu að heildarendurnýjun á umboði að ræða.
Bæjarráð samþykkir samkomulag um kjarasamningsumboð (á tveimur eyðublöðum) eins og það liggur fyrir og felur bæjarstjóra að undirrita.

9. 201111063 - Frá Bergmönnum; Drög að reglum skv. 6. gr. samnings.
Með fundarboði bæjarráð fylgdu drög að reglum um umgengni og umferðarrétt almennings skv. 6. gr. samnings við Bergmenn ehf. um afnotarétt af landi Dalvíkurbyggðar til þyrluskíðaferða.
Bæjarráð samþykkir reglurnar eins og þær liggja fyrir.

10. 201207013 - Trúnaðarmál
Bókað í trúnaðarmálabók.

11. 201207021 - Kosning aðalmanns og varamanns í umhverfisráð.
Björn Snorrason lagði fram eftirfarandi tillögu um aðalmann og varamann í umhverfisráð:
Aðalmaður: Daði Njörður Jónsson, kt. 261073-5609.
Varamaður: Baldur Snorrason, kt. 210273-3369.

Ekki komu fram aðrar tillögur
Bæjarráð samþykkir samhljóða ofangreinda tillögu.


Kristján E. Hjartarson vék af fund kl. 09:38 til annarra starfa og varamaður hans Heiða Hringsdóttir kom á fundinn í hans stað.
Marinó Þorsteinsson tók við fundarstjórn.

12. 201203081 - Fundagerðir hússtjórnar Ráðhúss 2012; 2. fundur 28. júní 2012; aðalfundur.
Heiða Hringsdóttir, bæjarstjóri og Marínó Þorsteinsson tóku til máls um fundargerðina og ekkert þarfnast afgreiðslu.

13. 1205014F - Félagsmálaráð - 160
13.1. 201203154 - heimsókn í Lengdu viðveruna
13.2. 1206035 - Mannréttindastefnan
13.3. 201206015 - Framkvæmd II. kafla reglugerðar um þjónustu við fatlað fólk á heimilum sínum.
13.4. 201205112 - trúnaðarmál
13.5. 201206025 - trúnaðarmál
13.6. 1206039 -  trúnaðarmál
13.7. 201206005 - trúnaðarmál
13.8. 201111050 - Trúnaðarmálabók
Enginn tók til máls um fundargerðina og ekkert þarfnast afgreiðslu.


14. 1110008F - Hafnarstjórn - 34
14.1. 201201028 - Framkvæmdir 2012
Til máls tók:
Bæjarstjóri.
Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögu hafnastjórnar um auknar framkvæmdir á árinu 2012 vegna flotbryggju vegna rafmagnsstaura, alls kr. 500.000, þannig að framkvæmdir verði hækkaðar um kr. 500.000 og afkoma hafnasjóðs lækkuð á móti.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að gerður verði viðauki við fjárhagsáætlun skv. ofangreindu.
14.2. 201205048 - Umhverfismál hafna
14.3. 201110086 - Gjaldskrá
Til máls tók:
Bæjarstjóri.
a) Bæjarráð samþykkir samhljóða drög að bréfi vegna innheimtu á gjöldum af gámum á hafnasvæðum í samræmi við gildandi gjaldskrá.
b) Bæjarráð samþykkir samhjóða tillögu að uppsátursgjaldi, kr. 4.200 per mánuð sem tekur gildi frá 1.júlí 2012.
14.4. 1207004 - Fjögurra ára samgönguáætlun 2013-2016
Til máls tók:
Bæjarstjóri.
14.5. 201207009 - Hafnasambandsþing 2012
14.6. 201201037 - Önnur mál 2012
Fleiri tóku ekki til máls um fundargerðina og annað þarfnast ekki afgreiðslu.

15. 1205007F - Umhverfisráð - 228
15.1. 1206044 - Leyfi til götusölu og útimarkaði
Bæjarráð kynnti sér teikningar er varða fundargerðina.
Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögu umhverfisráðs að svæði undir götusölu og útimarkað.
15.2. 201111083 - Svæðisskipulags, lýsing 2011 - 2023
Bæjarráð samþykkir samhljóða afgreiðslu umhverfisráðs á verkefnalýsingu vegna svæðisskipulags 2011-2023.
15.3. 1206029 - Umsókn um byggingarleyfi.
Samþykkt samhljóða.
15.4. 1106048 - Umsókn um byggingarleyfi
Samþykkt samhljóða.
15.5. 201207020 - Umsókn um leyfi fyrir heitum potti
Samþykkt samhljóða.
15.6. 1206073 - Beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfis-N1 skálinn.
Samþykkt samhljóða.
15.7. 1206072 - Beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfis-Hrísahöfði sumarhús
Samþykkt samhljóða.
15.8. 201207010 - Beiðni um umsögn vegna umsóknar um breytingu á rekstarleyfi. Vegamót
Samþykkt samhljóða.
15.9. 201207012 - Samningur um sorphirðu og fl. 2012
Til máls tóku:
Marinó Þorsteinsson
Bæjarstjóri
Heiða HringsdóttirÞorsteinn K. Björnsson, sviðstjóri umhverfis-og tæknisviðs,. kom á fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir samhljóða samning við Gámaþjónustu Norðurlands ehf. eins og hann liggur fyrir.
15.10. 201110088 - Gjaldskrár
Til máls tók:
Bæjarstjóri
Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögu að gjaldskrá fyrir stöðuleyfi af geymslugámum og fl.
15.11. 1207003 - Umferðaöryggisáætlun á Dalvík
15.12. 201207019 - Greinargerð vegna heitavatnsreiknings umfram áætlun
Fleiri tóku ekki til máls um fundargerðina og annað þarfnast ekki afgreiðslu.

16. 201202008 - Fundargerðir Sambandsins 2012; 796., 797. og 798. fundur stjórnar.
Lagðar fram til kynningar.

17. 201202007 - Fundargerðir HNE 2012; 144. fundur frá 16. maí 2012 ásamt ársreikningi 2011 og kostnaðarskiptingu 2011.
Lagt fram til kynningar.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:46.

Til baka

  • Webcam
  • Kortakerfi
  • Sorphirða
  • Fundargátt
  • Íbúðir til sölu
  • Mín Dalvíkurbyggð
  • Hús vikunnar
  • Sumarstörf

Viðburðadagatal

« maí 2013 »
m þ m f f l s
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31