Á grænni grein

Á vormánuðum 2009 varð Krílakot formlegur þátttakandi í verkefninu Á grænni grein. Landvernd stendur fyrir grænfánaverkefninu hér á Íslandi og er það fyrir leik-, grunn-, framhalds- og háskóla. Alþjóðlegu samtökin sem halda utan um verkefnið heita Foundation for Environmental Education eða FEE. Þau voru stofnuð 1981 og aðildarfélög eru nú frá 55 þjóðum. Landvernd hefur verið aðili að FEE frá árinu 2000.
Skólaárið 2011-2012 eru eftirtaldir starfsmenn í umhverfisnefnd Krílakots:
Guðný Björk Hallgrímsdóttir, Skakkaland
Guðrún Hrönn Tómasdóttir (Gunna), Skýjaborg
Sigríður Ingibjörg Stefánsdóttir (Inga Siddý), Hólakot
Halldóra Jóhannsdóttir, eldhús
Fulltrúar foreldra skólaárið 2011-2012 eru:
Óliver  Hilmarsson
Dagur Óskarsson
Katrín Kristinsdóttir


Umhverfissáttmáli Krílakots


Börn og starfsfólk Krílakots vill hugsa vel um náttúru og umhverfi okkar allra.

  • Við hugsum vel um okkar næsta umhverfi, eins og leikskólalóðina og trjárunna austan við leikskólann.
  • Við viljum og stefnum að því að spara orku og fara vel með allan efnivið, tæki og leikföng.
  • Við endurnýtum hluti, t.d. með því að skapa úr endurnýtanlegum efnivið.
  • Við flokkum og sendum í endurvinnslu; pappír, fernur, plast, málma, gler, rafhlöður, kerti og matarafgangar nýtast sem húsdýrafóður.
  • Þegar við förum í vettvangsferðir skiljum við ekki eftir rusl og týnum upp það sem á vegi okkar verður.
  • Við kynnum umhverfisstefnu okkar á heimasíðu og hvetjum aðra til að taka þátt.

Nánar:
Pappír: Við setjum allan pappír í endurvinnslu, fernur, eggjabakka. Pappír utan af morgunkorni er nýttur í föndur og dýr litaður pappír er notaður í algjöru lágmarki.


Endurnýting: Við nýtum það sem til fellur í föndur; eins og plastílát, tölur, tappa, dósir, íspinnaprik, íspinnakassa, tvinnakefli og margt, margt fleira.


Ræktun: Við viljum sá t.d. sumarblómum og grænmetisplöntum með börnunum að vori.


Vettvangsferðir: Leikskólinn er einstaklega vel staðsettur, stutt er í móa, fjöru, brekku, tjörn og svo margt fleira. Við þurfum aðeins yfir eina götu til að komast í berjalyng og fjallanáttúru.


Fræðsla: Börnin eru frædd um náttúruna, endurnýtingu, plöntur og dýr í hópastarfi.
Umhverfisdagur: Í maí, eftir að snjóa leysir, höfum við umhverfisdag. Við hreinsum til inni á leikskólalóðinni og í trjárunnunum austan við garðinn.


Rafmagns- og vatnsnotkun:
Við ætlum að nota rafmagn og vatn á skynsamlegan hátt; þ.e. ekki láta vatn renna að óþörfu og að draga úr ljósanotkun þar sem við á.


Annað: Við saumum sjálfar smekki, þvottastykki og taupoka svo eitthvað sé nefnt, í stað þess að kaupa inn. Þetta er að langmestu leiti saumað úr gömlum handklæðum, rúmfötum, gardínum og öðru sem heimilin gefa okkur.
Við notum gamla boli í málningar- og föndurvinnu í bland við svuntur.
Við gefum matarafganga í húsdýrafóður eins og kostur er.
Við nýtum poka undan bleyjum undir rusl og brauðpoka undir pappírsbleyjur.
Við tökum vel á móti foreldrum sem nota taubleyjur.