Uppbyggingasrstefnan
Uppbygging sjálfsaga
(e. restitution)

Uppeldi til ábyrgðar - uppbygging sjálfsaga er hugmyndafræði sem miðar að því að ýta undir ábyrgðarkennd og sjálfstjórn barna og unglinga og þjálfa þau í að ræða um tilfinningar og átta sig á þörfum sínum ( http://netla.khi.is/greinar/2007/003/index.htm ). Aðferðin er kennd við Diane Gossen frá Kanada, en hún hefur þróað aðferðina og kennt hana víða um heim.
Uppeldi til ábyrgðar þjálfar börnin í að vera það sem þau vilja vera, í stað þess
Haustið 2010 erum við hér á Krílakoti að taka okkar fyrstu skref í átt að hugmyndafræðinni. Til að byrja með er ætlunin að nýta hugmyndafræðina til að vinna með samskipti hinna fullorðnu (starfsmanna) og yfirfæra þá þekkingu og skilning á samskipti við börnin. Nú á haustönn 2010 byrjum við á að lesa bókina Barnið mitt er gleðigjafi, en hún er eftir Diane Gossen. Við vinnum með efni bókarinnar í leshópum þar sem fram fara umræður um skilning okkar á efninu og hvernig við getum nýtt þessa nýju þekkingu í starfi okkar. Upp frá því munum við setja fram áætlun um hvernig við munum nýta þessa þekkingu með börnunum.