Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Spurning mánaðarins

  • Fjölmenningasetur
  • island.is
  • Facebook
  • Pistlar úr Dalvíkurbyggð

Fiskidagurinn mikli 2012 - útimarkaður

11.07.2012

Nú er hægt að sækja um pláss á útimarkaði á Fiskidaginn mikla. Svæðið sem um ræðir er hið sama og fyrri ár, græni bletturinn norðan við Gregors pub á gatnamótum Hafnarbrautar, Kirkjuvegs og Goðabrautar. Sala á öðrum opnum svæðum á vegum sveitarfélagsins er ekki heimiluð.


Líkt og í fyrra verður svæðið eingöngu ætlað fyrir söluvarning heimamanna. Umsóknir skulu sendar á netfangið margretv@dalvikurbyggd.is  eða í síma 861 4908 fyrir 12.júlí 2012. Athugið að takmarkaður fjöldi kemst að.


Samkvæmt reglum Dalvíkurbyggðar um götusölu og útimarkaði er gjald kr. 2.000.- fyrir hverja sölueiningu. Við greiðslu fá þátttakendur leyfi sem þeir þurfa að framvísa á sjálfan markaðsdaginn. Um markaðssvæðið gilda Reglur um götusölu og útimarkaði sem er að finna á heimasíðu Dalvíkurbyggðar www.dalvikurbyggd.is  


Að auki gilda eftirfarandi reglur:
1. Markaðurinn verður opinn frá kl. 11:00-17:00 og eru þátttakendur beðnir um að virða þessi tímamörk.
2. Allur frágangur sölusvæðis er á ábyrgð þátttakenda, þar með talið ruslatínsla.
3. Þátttakendur þurfa sjálfir að koma með borð og annað sem þarf fyrir þeirra eigin sölu.
4. Svæðinu verður ekki skipt upp í reiti heldur sjá þátttakendur sjálfir um að skipta plássinu á milli sín. Vinsamlegast takið tillit til annarra seljenda.
5. Sala matvæla er háð leyfi Heilbrigðiseftirlitsins og verða þátttakendur að vera tilbúnir að framvísa leyfum á staðnum ef þess er óskað.
6. Þátttakendur sem ekki framfylgja reglum og/eða hafa ekki tilskilin leyfi verður vísað af svæðinu.


Ef upp koma spurningar eða álitamál vinsamlegast hafið samband við Jón Arnar í síma 898 3490 eða Margréti í síma 861 4908.

Jón Arnar Sverrission, garðyrkjustjóri
Margrét Víkingsdóttir, upplýsingafulltrúi

Til baka

  • Webcam
  • Kortakerfi
  • Sorphirða
  • Fundargátt
  • Íbúðir til sölu
  • Mín Dalvíkurbyggð
  • Hús vikunnar
  • Sumarstörf

Viðburðadagatal

« maí 2013 »
m þ m f f l s
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31