Skólanefnd Tónlistarskólans á Tröllaskaga

3. fundur 03. maí 2017 kl. 09:00 - 11:00 utan húss
Nefndarmenn
  • Hlynur Sigursveinsson sviðstjóri
  • Helga Helgadóttir aðalmaður
  • Ríkharður Sigurðsson aðalmaður
  • Steinunn Jóhannsdóttir formaður
Starfsmenn
  • Hjörtur Hjartarson embættismaður
Fundargerð ritaði: Hlynur Sigursveinsson, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
Dagskrá
Fundinn sat Hjörtur Hjartarson deildarstjóri fjölskyldudeildar í stað Róberts Grétars Gunnarssonar. Magnús G. Ólafsson sat fundinn, fulltrúi kennara boðaði forföll.

1.Skóladagatal TÁT, 2017 - 2018

Málsnúmer 201705063Vakta málsnúmer

Skóladagatal lagt fram til kynningar og umræðu.
Skólastjórar sveitarfélagana Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar hittust til að samhæfa skóladagatöl sín á milli og samþykkir skólanefnd framlagt skóladagatal TÁT.
Magnús G. Ólafsson sat fundinn, fulltrúi kennara boðaði forföll.

2.Starfsmannahald næsta skólaár og breytingar/ráðningar

Málsnúmer 201705064Vakta málsnúmer

Magnús skólatjóri TÁT fór yfir starfsmannahald fyrir næsta skólaár.
Fyrri liggur fæðingarorlof hjá tveimur kennurum sem leyst verður með innanhúss tilfæringum. Þá hefur einn kennari óskað eftir að fara úr 100% stöðugildi í 50% stöðugildi og hefur skólinn brugðist við því með að auglýsa 50% stöðugildi. Að öðru leyti er starfsmannahald í góðum farvegi.

3.Foreldrakönnun 2017

Málsnúmer 201705065Vakta málsnúmer

Niðurstöður foreldrakönnunar 2017 kynntar.
Niðurstöður foreldrakönnunar eru jákvæðar og tóku 72 foreldrar þátt í henni en í TÁT eru 207 nemendur. Fram komu ábendingar um aukið samspil og mun skólinn verða við því.

4.Starfsþróunarsamtöl - TÁT 2017

Málsnúmer 201705066Vakta málsnúmer

Staðan á starfsþróunarsamtölum 2017 lögð fram til kynningar.
Búið er að taka starfsþróunarviðtöl við alla kennara og er niðurstaðan að kennarar eru almennt ánægðir og líður vel í starfi.

5.Gjaldskrá og afslættir - TÁT 2017

Málsnúmer 201705067Vakta málsnúmer

Lagt fram til umræðu.
Umræðu frestað og frekari útfærslu óskað.

6.Fjárhagsáætlun (stöðuskýrsla, kjarasamningar 2017 og launaskrið

Málsnúmer 201705068Vakta málsnúmer

Rekstraniðurstaða TÁT fyrir tímabilið janúar til og með mars kynnt.
Lögð fram bókfærð staða samkvæmt aðalbók fyrir tímabilið janúar til og með mars 2017. Þar kemur fram að laun tímabilsins eru 5,6 millj. umfram áætlun en skýringuna má rekja til launaskriðs sem eftir er að bókfæra fyrir tímabilið. Hvað aðra þætti rekstrarins varðar þá eru þeir á áætlun.

7.Reglur um þátttöku sveitarfélaga um áframhaldandi tónlistarnám nemenda

Málsnúmer 201705070Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar
Umræðu frestað

8.Lokahátíð Nótunnar 2017 í Hörpu

Málsnúmer 201705071Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar
Hljómsveit á vegum TÁT fór á lokakhátíð Nótunnar í Hörpu 2. apríl s.l. og stóð sig vel.

9.Próf í vor, söngpróf og munnleg próf

Málsnúmer 201705074Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar
Átta nemendur TÁT hafa lokið fyrsta stigs prófi í söngnámi á yngra stigi.

10.Samæfingar og samspil

Málsnúmer 201705072Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar
Ákveðið hefur verið að allir kennarar TÁT taki þátt í samspili eða hljómsveitarstarfi til að bregðast við ábendingum úr foreldrakönnun og vegna áhuga nemenda.

11.Nýtt húsnæði TÁT á Dalvík - staðan

Málsnúmer 201705073Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar
Ráðist verður í breytingar á húsnæði Víkurrastar nú í sumar og frá og með næsta hausti mun starfsemi TÁT á Dalvík verða þar til húsa.

Fundi slitið - kl. 11:00.

Nefndarmenn
  • Hlynur Sigursveinsson sviðstjóri
  • Helga Helgadóttir aðalmaður
  • Ríkharður Sigurðsson aðalmaður
  • Steinunn Jóhannsdóttir formaður
Starfsmenn
  • Hjörtur Hjartarson embættismaður
Fundargerð ritaði: Hlynur Sigursveinsson, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs